Á Hvolfi

Undirstöður Vellíðunar

Líkaminn · Náttúran · Tengslin · Næringin

5. september  ·  Sólheimar, Selfoss

Skráðu þig

Dagsetning

5. september

Tími

Kl. 10:00–17:00

Staðsetning

Sólheimar, Sesseljuhús

Verð

17.500 kr

Viðburðurinn

Undirstöður vellíðunar er heilsdagsviðburður þar sem við gefum okkur tíma til að tengjast því sem styður við vellíðan okkar í grunninn: líkamanum, næringunni, tengslunum og náttúrunni.

Vellíðan þarf ekki að vera flókin, oft felst styrkurinn einmitt í hinu einfalda. Yfir daginn fléttum við saman fræðslu, mjúkri hreyfingu, öndunaræfingum, núvitund, nærandi mat, vinnustofum og samveru. Við gefum okkur rými til að hægja á, beina athyglinni inn á við og skoða hvað það er sem raunverulega nærir okkur, bæði líkamlega, andlega og félagslega.

Dagskráin fer fram í fallegu umhverfi Sólheima og er leidd af okkur Evu Rós, Eddu og Þórhöllu, sem koma úr ólíkum faglegum áttum innan jógafræða, næringarfræði, sálfræði og taugavísinda. Með fræðslu, hreyfingu, öndunaræfingum, núvitund og samveru könnum við leiðir til að efla tengslin við okkur sjálf, fólkið í kringum okkur og þær grunnþarfir sem stuðla að heilsu og góðri líðan.

Dagskrá

10:00

Móttaka á Sólheimum í Sesseljuhúsi

Kaffi, te og kynning.

Tenging við líkamann

Mjúkt jógaflæði

Eva Rós leiðir okkur í gegnum jóga og öndun.

Tenging við næringu

Hádegismatur

Edda leiðir ljúffenga næringu í núvitund.

Tengsl, samskipti og samkennd

Vinnustofa

Þórhalla leiðir fræðslu og vinnustofu um tengsl við okkur sjálf og aðra.

Tenging við náttúruna

Útivera

Fræðsla um mikilvægi útivistar og samspil náttúrutengingu og vellíðunar. Núvitundargönguferð um svæðið.

Samantekt

Lokum deginum saman, samþættum upplifunina og beinum sjónum að því sem við viljum taka með okkur áfram. Dagbókarskrif og tími fyrir spurningar.

17:00

Dagskrá lýkur

Dagskráin getur tekið minniháttar breytingum.

Skráning

Takmörkuð pláss í boði. Greiðsluupplýsingar munu berast í pósti eftir skráningu. Eftir að greiðsla hefur borist, muntu fá tölvupóst með staðfestingu.